13 apríl 2006

513CE46A7A2D2A2A6A54E217BEDB959E

12 apríl 2006

Fluttur enn og aftur...

Ég ætla að flytja mig á nýja mbl.is bloggsvæðið:

http://harhar.blog.is

Kveðjur góðar, Halli

08 apríl 2006

Að loknum 10 vikum..

Þá er 10 vikna æfingakafla lokið með 10 km Flóahlaupi í dag. Hlaupið gekk svipað og lagt var upp með að halda 4 mínútna pace fyrstu 6 og svo auka hraðann. Kláraði á 39:46 sem er PB og þetta á ekki að hljóma ílla (þó það geri það nú svolítið), þarna er talsvert meiri innistæða. Það sem skyggir svolítið á gleðina er að eftir að búið var að kasta mæðinni í eina mínútu, þá kom greinilega í ljós að vinstrikálfinn var ekki góður og nú liggur fyrir að ég hef tognað í hlaupinu. Enn tvær vikur til stefnu svo ekkert þýðir að hengja haus að svo stöddu. Voltarin, kælingar, síðar hitanir og kælingar og sjúkraþjálfari gera kraftaverk.

Þegar upp er staðið og horft er yfir þessar 10 vikur þá má ljóst vera að álagið hefði mátt vera heldur meira en raun ber vitni, en þetta er lífið, einfaldlega ýmislegt sem setur strik í reikninginn svo niðurstaðan er þessi: v12 67km, v11 52km, v10 85km, v9 69km, v8 73km, v7 65km, v6 90km, v5 71 km, v4 96km og loks v3 62km. Á móti kemur að þó magnið hafi kanski verið svona heldur í minna mæli, þá hafa gæðin verið til staðar og hver gæðaæfingin rak aðra, þar sem tempó útihlaup skiptust á við sprettæfingar í nýju Frjálsíþróttahöllinni undir styrkri stjórn Foringjans. Á þessum æfingum hefur gamla keppnisskapið verið manns stoð og stytta, þó sumir geri kanski létt grín að því, en svona er þetta bara og þessvegna tekur maður á í fyrsta spretti eins og þeim síðasta, en spáir ekki sérstaklega í að það eru 9 sprettir eftir þegar sá fyrsti er búinn.

Nú eru tvær vikur eftir þar sem planið var að skera hlaupa magnið snöggt niður og nú gerist það af íllri nauðsyn og væntanlega lítið hlaupið þessa vikuna, kanski maður setjist á hjólhnakk í staðinn eða jafnvel geri það óhugnarlegasta af öllu.. syndi.

25 mars 2006

Kaldir vetrar dagar..

Köld vika liðin undir lok, sem endaði með hálfu maraþoni í Marsmaraþoni FM. Maður er góðu vanur í vetur þar sem frost hefur verið sjaldséður gestur. Núna þarf maður að búa við 1 – 4 stiga frost og allt ætlar um koll að keyra úr kulda. Þokkalega hlaupinn í vikunni þar sem t.d. var tekið vel á því i Höllinni á fimmtudaginn með 10*400 metra sprettum með 200 m. rólegum á milli. Svolítið væl aftan í hægra læri og í hægri kálfa svo ég leyfði mér að draga mig út úr “eftir” æfingunum hjá Foringjanum. Fann ekkert fyrir því í dag, enda magnað hvað einn hvíludagur gefur mikið.

Eftir hrakfarirnar miklu í Poweraidhlaupinu í um daginn lögðust allir á eitt um að telja mér trú um að fara nú hægt af stað í dag eða segjum skynsamlega. Vera á maraþon-pace, sjá svo til á baka leiðinni. Nú nú, þar sem ég er hlíðinn og vel upp alinn þá reyndi ég það eftir fremsta megni, en var þó nokkuð ákveðið 10 sekundum of fljótur miðað við áætlanir. Svolítið bætti ég í þetta á leiðinni heim, en var samt tiltölulega jafn allt hlaupið. Greining á deginum er að það var kalt, 4,30 pace er möguleiki í London, hlaupið var 300 - 400 metrum of langt, hlaupið tók 1, 32:30 sem er PB, Silvía rúlar, aumingja Geir, Aston Villa gerði jafntefli, dökki páskabjórinn er góður og ég verð að kaupa mér ASICS® GEL -DS Trainer® XI í næstu viku.

20 mars 2006

5 vikur eftir..

Langt um liðið síðan ritað var hér síðast. Eftir viku from “hell” hefur þessi vika verið fín, 90 km kláraðir og almenn líðan góð og veður með eindæmum. Núna eru 2 vikur eftir þar sem enn verður reynt að bæta við magni og gefa allt á æfingum, síðan gírar maður þetta niður þar sem 3 vikur verða í markmiðið með þessu öllu – London maraþon. Næsta vika mun gera aftur rétt um 90 km, þar sem hápunkturinn verður hálft maraþon í Marsmaraþoni FM. Vikan þar á eftir gerir síðan samkvæmt plani 100 km, þar sem hápunkturinn verða 35 km. Eftir það er planið frekar autt ennþá, þarf eiginlega kynna mér það betur hvernig fólk hagar sér þessar síðustu 3 vikur, en það kemur væntanlega allt í ljós.

Hefði viljað skrifa ýmislegt um brottför Bandaríkjahers, annað en “gleði, gleði, gleði”. Verð þó aðeins að vitna í hið virta stórblað Morgunblaðið frá í dag. Í Reykjavíkurbréfi dagsins er verið að reyna finna því stoð að 4 og ekki minna en 4 orustuþotur séu nauðsynlegar til varnar landinu, allt annað sé barnaskapur og ábyrgðarleysi.

Fyrri tilvitnunin kemur úr texta um að allar þjóðir hafi ákveðna skoðun á varnarþörf sinni og því hljóti það gilda hér.

“Þau telja sig öll hafa þörf fyrir sýnilegar og virkar loftvarnir, bæði til að fylgjast með umferð ókunnra flugvéla um lofthelgi sína og til að geta brugðizt við árás, ekki sízt hryðjuverkaárás” Halló?!?!? Skildu New Yorkbúar, Madridingar eða Lundunarbúar kaupa svona logik. Ætli þeir hefðu ekki frekar kosið öflugra borgaralegt eftirlit.

Seinni tilvitnunin kemur aðeins síðar í textanum og takið sérstaklega eftir síðustu setningunni.

"Fjórar þotur geti gert það erfitt að gera árás óhindrað, t.d. ef lítill hópur árásarmanna tæki hér land með ákveðið skammtímamarkmið fyrir augum, en búast megi við að Íslendingar hafi áhyggjur af slíku. Því má raunar bæta við að Íslandssagan sýnir mætavel hversu viðkvæmt landið getur verið fyrir slíkum árásum." Veldur “innrás” Jörundar hundadagakonungs ennþá svefnleysi á ritstjórnarskrifstofum Morgunblaðsins?!?!?

Ég trúi því ekki fyrr en á reynir að Morgunblaðinu takist næstum einhendis að framlengja þetta hernaðarbrölt á Miðnesheiði. Ég get ekki varnað þessari hugsun að koma fram “Er ekki kominn tími á Styrmi og hugarfar hans?”

09 mars 2006

Jæja..

Þetta var hræðilegt.. ég er að tala um Powerade.. gjörsamlega glórulaust, svo það sé sagt. Tíminn að sjálfsögðu í samræmi við það ca. 43:20 sem er nú ekki alveg eins og lagt var út með. Þó langt sé um liðið síðan ég keppti síðast í 10K hlaupi, þá fer þetta í minninguna sem það versta hingað til. Meira segja verra heldur en 1. maí hlaup Fjölnis 2003 sem haldið var í 4 gráðum og norðaustan báli. Nenni ekki útlista þetta í smáatriðum, en tökum það jákvæða úr þessu, sem var þrældómurinn að klára. Þessi vika er ekki að gera sig, eins gott að laugardagshlaupið verði sem blómstrið eina.

08 mars 2006

amatör eða..

Sökum umferðarteppu í Ártúnsbrekkunni sem náði allt að ljósunum hjá Vogaskóla, sá ég mér þann kost vænstan að mæta hjá Laugaskokk í dag, enda með seinni skipunum eins og svo oft áður. Rétt náði Pétri og félögum sem voru farin af stað þegar ég hafði loks fundið bílastæði.

Markmiðið var að taka það rólega í dag og því hentaði 13 km skokkið hjá Pétri ágætlega.
Veður var glimrandi, logn og sól í heiði eða hafi. Það sem ég vil þó færa til bókar er að nú veit ég hver Agga er í persónu en hafði vitað af henni sem bloggara í nokkurn tíma. Greinilega kjarnorku kona sem allir geta kynnt sér með því að kíkja á bloggið hennar. http://blog.central.is/gmb

Jæja stefnan er tekin á síðasta Poweradehlaupið í vetur, annað kvöld (má maður þá ekki örugglega mæta á lokahófið???). Hefði ég tjáð mig um markmið um síðustu helgi, hefði ég verið drjúgur mjög, eins og ég á uppruna til, en þar sem ekki lengur er síðasta helgi þá verð ég að vera jarðbundnari með markmiðssetningu..... nei hvaða frístundahópiamatörshlauparakjaftæði er þetta..... 40 mínútur!!! Slegið.

07 mars 2006

hohhh

Það var einn af “þessum” dögum í kvöld þegar ég fór að hlaupa. Ónýtar lappir, sem ekkert vildu og ekkert gátu, en fengu þó litlu ráðið. Tók hring frá Laugum upp á Langholtsveg, Elliðaárdalur að Árbæjarlaug og til baka með pínu krúsidúllu í lokin til að ná 15 km. Ég var eiginlega þokkalegur síðustu 2 kílómetrana. Ahh en þetta var puð og andlaust en það þíðir ekkert að vera í tómri vorkunn og aumingjaskap.. jeg kommer stærkt tilbage i morgen. Nohh er maður farinn að tala dönsku, þá held ég að sé orðinn ruglaður... ekki að það séu endilega stór fréttir í sjálfu sér.

Aðstæður fínar, en hefði ekki mátt vera mikið síðar á ferðinni því það gerði mjög lúmska hálku í kvöld á götum og gangstéttum, þó bíllinn segði 2 gráður í plús. Læt þetta duga í bili.. og þó.. fór 10 km í gærkvöldi á bretti (var nú heldur ekki í geggjuði stuði þar).

04 mars 2006

Í sól og vetraryl..

Það var heiðskýrt, logn og 5 stiga frost í morgun, þegar Larsen-hópurinn lagði af stað frá tækjunum. Mættir voru undirritaður, Foringinn, Stefán, Ingibjörg, Alli, Gautur, Golli, Kalli og Birgir sem reyndar hlaupur ekki oft með Larsen en þar sem hann er prúður drengur mjög og ágætur hlaupari, þá voru ekki sérstakir annmarkar á því að hann væri með. Hlaupaleið var norðurströnd Reykjavíkur að JL-húsi þar sem tekinn var krókur í gegnum KR-svæðið yfir á Ægissíðuna. Hún farinn inn í botn og út Kársnesið, Smáratorg, Smiðjuhverfi og heim - 31 km og tíminn vafalaust ágætur.

Þrátt fyrir einmuna veðurblíðu í vetur til hlaupa, verður þetta að teljast fyrsta laugardagshlaupið í glampandi sólskyni síðan bara ég veit ekki hvenær... allavega á árinu, enda er ekki laust við að eftir klukkustund í potti í framhaldinu og yfirlegu yfir Aston Villa – Portsmonþ (sem mínir menn unnu sannfærandi 1 – 0), þá sé maður bara með léttan roða.

Hlaupið gekk annars ágætlega og maður virðist rúlla þessa rúma 30 km án mikillar fyrirhafnar sem er fínt því innan við tólftímum áður hafði ég hlaupið 10 km í Laugum og klárað næstum maraþon á 14 tímum. Tempóið í dag var mikið til rétt um 5, en geri ráð fyrir að sperra mig svolítið á næsta laugardag og reyna að taka síðustu 10 – 15 á maraþonhraða og sjá hvernig það gengur.

02 mars 2006

SkÁL Húsvíkingar

Afsakið litlar skriftir, ástæður þess eru tvær, annarsvegar of stuttur sólarhringur og hinsvegar nenni ég stundum að ekki skrifa sem er eiginlega afleiðing af fyrr ástæðunni. Jæja nóg um það. Eitthvað er nú búið að hlaupa í þessari svölu en björtu viku. Mánudagurinn var tekinn með hefðbundnum látum þar sem keyrt var síðari helminginn á kringum 4 í pace. Mánudagur 11 km. Nennti þessu ekki á þriðjudaginn... já ég veit, það er bannað, en svona var það. Brekkusprettir í nýrri “brekkusprettabrekku” á miðvikudaginn, almenn ánægja með þá ákvörðun. Þetta er stígurinn við aðkeyrsluna að Grafarholtsvellinum. Fyrst teknir 5 * “að fimmta ljósastaur” og síðan 2 * “að tíunda ljósastaur”. Þetta var töff enda sat þetta í manni í kvöld. Æfingin gerði 10 km. Í kvöld var það höllin með 6 * 600 m og hring á milli og einni mínútu. Verið að keyra þetta á 1:55 – 1:59 sem er bara talsvert puð um þessar mundir. Æfingar á beinu brautinni í framhaldi og síðan 2 * 50 magi og loks 50 armbeygjur... ok loks loks 5 hringir rólegir á braut. Pakkinn gerði 10,5 með upphitun úti.

Jæja þá er blessaður bærinn minn við víkina sem kennd er við hús búinn að fá grænt ljós á hagkvæmni skoðun fyrir nýtt álver. Sá félagana káta í sjónvarpinu og sannarlega samgleðst maður með þeim. Eiginlega ekki hægt að útskýra það fyrir Reykvíkingum hvað þetta er landsbyggðinni mikilvægt sem hafa lifað samfelda gróskutíð í aldarfjórðung meðan jafnt og þétt hefur svorfið að landsbyggðinni að sjálfsögðu af ýmsum ástæðum. Ég var spurður 1974 hvað byggju margir á Húsavík og ég sagði 2500 og þar sem 2500 er falleg tala hef ég sagt hana síðan enda hefur þetta rokkað plús mínus 50 manns síðan þá. Ef af álveri verður á það eftir hafa gríðarlega jákvæð áhrif á svæðinu og maður sér fyrir að flug muni hefjast aftur til Húsavíkur og jarðgöng verði gerð í gegnum Vaðlaheiðina. Ýmsir sem þekkja mig, vita væntanlega að ég hef nú ekki verið álsinni númer eitt á Íslandi, þess vegna vil ég bara árétta það sem ég hef oft sagt – ef eðlileg ávöxtunarkrafa er gerð á byggingar raforkuvera og ekki sökkt perlum landsins, þá er þetta í góðu lagi, en annars ekki! Ég gæti masað hér um þetta málefni til morguns, en þar sem ég nenni því ekki og þið nennið ekki að lesa það, verður því sleppt.