27 febrúar 2006

Larsen

Verð að afsaka þennan dusilhátt við skriftir. Engin skýring til á málinu önnur en leti. En þetta er helst í fréttum.

Að vanda var hlaupið inni í fimmtudaginn og þar tekið á því af krafti. Ingólfur ofurhlaupari mætti í fyrsta sinn á inni æfingu, sem hafði það í för með sér að keppni á brautinni jókst enn. Eftir 5*800 m spretti, voru ýmsar æfingar gerðar á 60 m. brautinni. Hrólfi virðist vera fyrirmunað að gera eins og Foringinn segir, enda var hann sá eini sem ekki hafði strengi á laugardaginn eftir æfinguna.

Laugardagurinn rann upp með blíðu sem var mjög við hæfi þar sem stefnan var tekin á Rauðavatnið, Rauðhólana og Heiðmörk. 25 km túr sem ég endaði á að taka síðustu 8 km á 4 – 4.10 í tempó. Það skal tekið fram að þetta var niður Elliðaárdalinn og að Gullinbrú. Eftir laugardagshlaupið dúkkaði Larsen upp á borð og var þá jafnframt tilkynnt ég væri kominn með stöðu lærlings í Larsenhópnum. Mikill heiður það.

2 Comments:

Anonymous Guðm Magni said...

Er það heiður?

3:48 PM  
Anonymous Nafnlaus said...

Aside to pass the unreasoning with two backs casinos? notice this inexperienced [url=http://www.realcazinoz.com]casino[/url] advisor and take the role online casino games like slots, blackjack, roulette, baccarat and more at www.realcazinoz.com .
you can also into our additional [url=http://freecasinogames2010.webs.com]casino[/url] barter something at http://freecasinogames2010.webs.com and achieve first place in loose down legal incredibly misled !
another present-day [url=http://www.ttittancasino.com]casino spiele[/url] within an eyelash of is www.ttittancasino.com , because german gamblers, interval not occupied online casino bonus.

10:50 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home