Tóm gleði...
Ég er eiginlega alveg upprifinn eftir hlaup dagsins. Fyrir rétt mánuði skrönglaðist ég 27 km og var varla að hafa það af, að klára heim. Í dag er ég að hlaupa 35 km og enda með því að auka tempóið síðustu 5 km í 4,30 í pace og renn þetta ljúft heim. Ljóst að æfingar Foringjans eru farnar að kikka inn. Aðstæður voru eins og best verður á kosið í dag, hægur vindur, hiti 5 gráður og skýjað, stundum smá súld. Mættir voru Foringinn, Stefán, Kalli, Ingibjörg, Gautur og Golli sem reyndar tók Fossvoginn heim. Leiðin var frá Gullinbrú inn í Kópavog og ströndin kringum Kársnesið, Ægissíðan og haldið áfram að vestur á Lindarbrautina, loks fylgt norður strönd Reykjavíkur inn að Gullinbrú aftur. Garmurinn minn sagði: 35,16 km, avg pace 5,27 (inniheldur nokkur stopp vegna vatnsáfyllinga og klósettferða), Run time 3,11 klst og Calories 3.437!!!
Þar sem ég sit hérna núna skal ég þó viðurkenna, að dagurinn hefur tekið töluverðan toll og spurning hvað þarf að fara ofan í mig til að rífa mig upp. Treysti á að flutning Silvíu Nætur í kvöld ef í harðbakkan slær. Ætla rétt að vona að hún taki þetta í kvöld. Auðvitað á maður fulltrúa þarna, hana Birgittu Haukdal sem maður þjálfaði í handbolta hér á árunum á Hú og lagði um leið grunninn að söngferli hennar...... nei ok ég missti mig smá varðandi söngin, en þrátt fyrir að átthagafjötrarnir segi talsvert til sín, þá gengur bara ekki að kjósa hana, því lagið er svo arfa slakkt. Hún hefur þó aldrei litið betur út blessunin, sem er afrek út af fyrir sig, því ekkert hefur nú útlitið verið henni fjötur um fót.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home