13 febrúar 2006

Var einhvern að tala um veðrið..

Hafi veðrið verið gott á laugardaginn, þá var það bara klikkað núna seinnipartinn. Maður fagnar hverjum degi sem kemur af þessum gæðum á þessum árstíma. Svolítið að sperra mig á hlaupunum í dag. Eftir rólegan einn og hálfan km, þá gaf ég í hljóp næstu 7 km á meðal "peisi" í kringum 4 mín/km. Rúllaði restina hægar. Vegalengd 11 km. Nú er bara að safna fullt af km í vikunni, þó spáin fyrir næstu 2 daga sé kanski ekki "optimal".

Kátur með úrlitin í prófkjörinu hjá Samfylkingunni, get varla beðið eftir að þeir Dagur og Vilhjálmur fari að mætast í aðdraganda kosninganna. Held að Sjallarnir ættu að fara varlega í að lýsa yfir sigri fyrirfram í borgarstjórnarkosningunum í vor.

Annars er magnað að lesa bloggið hjá Birnir Bjarna. Eins og oft áður eru fjölmiðlar á Íslandi góðir við Samfylkuna og vondir við Sjallanna, að mati BB:

"Fjölmiðlaumræður um niðurstöður prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík eru dálitíð spunakenndar, svo að ekki sé meira sagt. Fjölmiðlafólk skautar framhjá atriðum, sem hefðu örugglega verið gerð að aðalatariði, ef aðrir ættu í hlut"?!?!?

Ætli BB sofi vel í þessari "paranóju" sinni.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Bara hættur að skokka með Laugar-hópnum.? Flott nýja blogg lúkkið hjá þér. Gangi þér vel að æfa fyrir London maraþon, hvernig nennirðu þessari vitleysu? Veistu hvað það er erfitt að hlaupa 42 km?? Já þú veist það. Bið að heilsa.
Helga

10:29 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home