12 febrúar 2006

Veðrið.. það er bara snilldin ein

Gæða æfing í dag með Larsen-hópnum. Veður náttúrlega gríðarlega gott, 6 gráður, andvari úr suðri og skýjað. Fórum Kópavogshring með smá sving að fyrstu brú í "Brúarhring" til að ná örugglega 20 km. Mættir voru Foringinn, Stefán, Hrólfur, Kalli, Magnús og undirritaður. Tempó var melló fyrstu 15 km, en síðan keyrt upp í 4:30 í pace og klárað síðustu 5 km þannig. Smá skipting varð að vísu á hópnum og með sameiningarjoggi gerði dagurinn 22 km. Góður dagur.

Það er þannig svo það sé tekið fram að það sem sagt er á hlaupum fer ekki lengra, en þar sem undirritaður var miðpunktur ákveðinnar umræðu, þá langar mig bara að ákveðið atriði sé skráð. Spurning "hvað ætlarðu að hlaupa hratt í London, Halli?". Svar "4,30!!!".... Ok, ok. glórulaust, sjáum til, einhverju varð maðurinn að svara og þetta hljómar vel, var svo sem ekkert búinn í smáatriðum að reikna út heildartíma en látum þetta standa og verða vitnað til.