21 febrúar 2006

Voðalega getur þetta verið erfitt..

Það var þreyttur og ekkert sérlega vel upplagður maður sem steig á hlaupabretti í Laugum í kvöld. Hægri kálfin að væla eins og stundum áður, svo sem ekkert sem ég hef áhyggjur af, bara smá pirrandi. Var með augun á leik Madridar og Arsenal og eyrun tengd við Kastljósið sem var ágætis blanda. Hlaupin gengu samt voðalega þreytulega og eftir 10 km nennti ég ekki meir og brölti í teygjurnar.

Jæja þá er Kastljósið og ríkisskattstjóri búin að votta að skattar hafa hækkað á 75% af launafólki en lækkað á 25% launafólks.

Spurning dagsins er þessi:
"Á hvaða hluta launþega hafa skattarnir lækkað?"

Svar möguleikar:
a) þá sem hafa laun í hópi lægstu 75% launþega
b) þá sem hafa laun í hópi hæstu 25% launþega
c) öryrkja og ellilífeyrisþega