04 mars 2006

Í sól og vetraryl..

Það var heiðskýrt, logn og 5 stiga frost í morgun, þegar Larsen-hópurinn lagði af stað frá tækjunum. Mættir voru undirritaður, Foringinn, Stefán, Ingibjörg, Alli, Gautur, Golli, Kalli og Birgir sem reyndar hlaupur ekki oft með Larsen en þar sem hann er prúður drengur mjög og ágætur hlaupari, þá voru ekki sérstakir annmarkar á því að hann væri með. Hlaupaleið var norðurströnd Reykjavíkur að JL-húsi þar sem tekinn var krókur í gegnum KR-svæðið yfir á Ægissíðuna. Hún farinn inn í botn og út Kársnesið, Smáratorg, Smiðjuhverfi og heim - 31 km og tíminn vafalaust ágætur.

Þrátt fyrir einmuna veðurblíðu í vetur til hlaupa, verður þetta að teljast fyrsta laugardagshlaupið í glampandi sólskyni síðan bara ég veit ekki hvenær... allavega á árinu, enda er ekki laust við að eftir klukkustund í potti í framhaldinu og yfirlegu yfir Aston Villa – Portsmonþ (sem mínir menn unnu sannfærandi 1 – 0), þá sé maður bara með léttan roða.

Hlaupið gekk annars ágætlega og maður virðist rúlla þessa rúma 30 km án mikillar fyrirhafnar sem er fínt því innan við tólftímum áður hafði ég hlaupið 10 km í Laugum og klárað næstum maraþon á 14 tímum. Tempóið í dag var mikið til rétt um 5, en geri ráð fyrir að sperra mig svolítið á næsta laugardag og reyna að taka síðustu 10 – 15 á maraþonhraða og sjá hvernig það gengur.